Stuð og stemning á páskabingói Átaks!

Páskabingó Átaks fór fram í gær, á pálmasunnudag. Mikil stemning var í húsinu og vinningar ruku út. Meðal vinninga voru gjafabréf á veitingastaði, páskaegg, bollar, bækur, skartgripir, púsluspil og gjafabréf í leikhús. Setið var í hverju einasta sæti í salnum þar sem bingóið var haldið, á Háaleitisbraut 13. Ljóst er að næsta bingó verður haldið í stærri sal.

Átak þakkar öllum sem mættu á bingóið og öllum þeim sem gáfu vinninga til styrktar félaginu.

Gleðilega páska!Bingó

Salurinn var stútfullur!

Haukur bingóstjóri

Haukur Guðmundsson, formaður Átaks, var bingóstjóri.