Myndir frá viðburðum og starfsemi Átaks.



Átak tók þátt í Gleðigöngunni 2026 með öðru fólki úr ÖBÍ. Ljósmyndari Dóra Dúna

Vorið 2026 var mjög viðburðaríkt hjá Átaki. Í febrúar héldum við hraðstefnumót í Bíó Paradís og félagsfund. Í mars fór fólkið í Átaki í keilu og pílu. Í byrjun júní héldum við síðan hið árlega grillpartý Átaks. Á árinu höfum við einnig haldið margar kynningar í framhaldsskólum, á vinnustöðum, hjá ÖBÍ og víðar. Við höfum tekið þátt í fjölbreyttu samráði og búið til fjölda myndbanda fyrir samfélagsmiðla, þar á meðal fyrir DÍML og fyrir borgar-stjórnar-kosningar. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá starfi Átaks vorið 2026.



Myndir frá Frikkinn verðlaunaafhendingu 2024

Átak hélt mál-þing með ÖBÍ og Fjölmennt um þjóðaratkvæða-greiðsluna 29.ágúst 2026 um hvort Ísland ætti að hefja á ný aðildar-viðræður við Evrópu-sambandið. Við fengum sem ætlaði að kjósa já og fólk sem ætlaði að kjósa nei til að koma. Við spurðum þau spurninga.

Bak við tjöldin við gerð Hjálpum þeim tónlistarmyndbandsins




Verkefni á vegum Leonardo áætlunar Evrópusambandsins. Frá 1997 til 2000 tók Átak þátt í Evrópsku samstarfsverkefni sem styrkt var af Leonardo da Vinci sjóðnum verkefnið bar heitir "Working as equal people" sem er á Íslensku, Vinnum saman sem jafningjar. þátttakendur í verkefninu people first frá Bretlandi og ulf frá Danmörku, systursamtök átaks í þessm löndum Verkefnið byggði á fræðsluefni sem opni háskólinn í bretlandi hannaði í samvinnu við hreyfinguna people first en people first er samskoana samtök og ástak og starfa í Bretlandi og Bandaríkjunum. í tengslum við þetta verkefni gaf átak ú handbók sem unnin var upp úr fræðsluefni og opna háskólans. ber hún heitið vinnum saman sem jafningjar. Í bókinni er lögð áhersla á að styrkja fólk með þroskahömlun til þess að tala um sig sjálft og líf sitt í bernsku og nútíð. Einnig er beint sjónum að því hvað félagar í átaki vilji sjá gerast í réttindamálum fólk með þroskahömlun.