NEYÐARSÖFNUN FYRIR FATLAÐ FÓLK Í ÚKRAÍNU!

Átak - félag fólks með þroskahömlun, Þroskahjálp, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands, hafa í samvinnu hvert við annað sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu.
 
Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og staða þess í Úkraínu grafalvarleg. Fatlað fólk getur ekki flúið vegna aðstæðna sinna, getur illa orðið sér út um mat, lyf og aðrar nauðsynjar. Einnig aukast líkur á ofbeldi, að fatlað fólk verði skilið eftir og að það sé án aðstoðar og stuðnings. Ástandið versnar dag frá degi og árásir rússneskra stjórnvalda á óbreytta borgara í Úkraínu halda áfram.
 
Hreyfingarnar, sem allar vinna að réttindum fatlaðs fólks, hafa því sett af stað sameiginlega söfnun til þess að koma fjármagni til fatlaðs fólks og tryggja þeim aðstoð á staðnum. Öll framlög munu renna beint til neyðaraðstoðar fyrir fatlað fólk í Úkraínu, milliliðalaust.
 

Þú getur millifært á:

Kt. 521176-0409

Reikningur: 526-26-5281

 

 

AUÐLESIÐ

 
  • Það er stríð í Úkraínu.
  • Rússland réðst inn í Úkraínu.
  • Fatlað fólk á mjög erfitt í stríði.
  • Það getur ekki flúið landið sitt.
  • Það er erfitt fyrir það að kaupa mat og lyf.
  • Þess vegna hafa samtök fatlaðs fólks ákveðið að safna peningum til að senda til Úkraínu.
  • Þetta eru samtökin Þroskahjálp, Átak, TABÚ og ÖBÍ.
  • Allir peningar sem safnast fara beint til Úkraínu.
  • Það er hægt að millifæra styrki í banka.
  • Númerið er:
    • Kennitala: 521176-0409
    • Reikningur: 526-26-5281