Vilt þú tilnefna einhvern til Frikkans, heiðursverðlauna Átaks?

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhenti heiðursverðlaunin árið 2022. Verðlaunin fékk hún Marg…
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhenti heiðursverðlaunin árið 2022. Verðlaunin fékk hún Margrét M. Norðdahl.

Í desember verða heiðursverðlaun Átaks afhent. Þau heita Frikkinn og eru veitt til einstaklings eða hóps sem hefur barist fyrir sjálfstæði fólks með þroskahömlun og stuðlað að samfélagi án aðgreiningar á öllum sviðum.


Vilt þú tilnefna einhvern? Sendu tilnefningu á frikkinnverdlaun@gmail.com fyrir 20. nóvember næstkomandi. Með tilnefningunni þarf að fylgja rökstuðningur.